Lög félagsins

  1. Heiti og markmið
    1. Nafn hreyfingarinnar er Ungir evrópusinnar.
    2. Hreyfingin er ekki tengd neinum stjórnmálaflokki eða öðrum félagasamtökum.
    3. Helsta markmið hreyfingarinnar er að vinna að aðild Íslands að Evrópusambandinu.
  2. Varnarþing
    1. Heimili hreyfingarinnar og varnarþing er í Reykjavík.
  3. Hlutverk Ungra evrópusinna
    1. Hlutverk Ungra evrópusinna er að stuðla að opinni og upplýsandi umræðu um samstarf evrópuríkja;
    2. að dreifa upplýsingum og þekkingu um Evrópusambandið
    3. að koma hugsjónum og hugmyndafræði Evrópusambandsins á framfæri við unga fólkið.
    4. að leiðrétta rangfærslur um Evrópusambandið.
    5. að fá alla unga evrópusinna undir sama hatt.
    6. að starfa náið með öðrum íslenskum og erlendum hreyfingum sem vinna að svipuðum markmiðum:
      1. Evrópusamtökin
      2. Europeisk Ungdom í Noregi
      3. JEF
  4. Aðild að Ungum Evrópusinnum
    1. Aðild að hreyfingunni geta allir einstaklingar átt frá og með 16 ára afmælisdeginum sínum og þar til þeir verða 36, gangist þeir undir lög þessi.
  5. Aðalfundur Ungra evrópusinna
    1. Aðalfundur hreyfingarinnar skal haldinn árlega og að jafnaði fyrir 1. nóvember ár hvert. Til aðalfundar skal boða með a.m.k. fjórtán daga fyrirvara. Stjórn skal sjá um að boðað sé til aðalfundar og auglýsa eftir framboðum í stjórn.
    2. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir félagar í Ungum evrópusinnum sem voru meðlimir í félaginu a.m.k. viku fyrir aðalfund.
    3. Dagskrá aðalfundar er að jafnaði þessi:
      1. Afhending fundargagna
      2. Setning aðalfundar
      3. Kosning starfsmanna aðalfundar: forseta, fundarritara og uppstillingarnefndar ef þurfa þykir.
      4. Framlagning ársskýrslu.
      5. Framlagning ársreikninga.
      6. Lagabreytingar.
      7. Kosning í stjórn.
      8. Afgreiðsla ályktana og almennar stjórnmálaumræður.
      9. Önnur mál.
      10. Fundarslit.
        1. Stjórn Ungra evrópusinna er heimilt að bregða út frá þessari dagskrá svo framarlega sem að sú nýja dagskrá sé auglýst á sama tíma og boðað er til aðalfundar. Alltaf skal þó kosið um stjórn hreyfingarinnar á aðalfundi.
        2. Aðalfundur og almennir félagsfundir hafa æðsta úrskurðarvald í málefnum hreyfingarinnar og hafa félagar einir atkvæðarétt og kjörgengi.
        3. Aukaaðalfund skal halda ef meirihluti stjórnar eða þriðjungur félagsmanna á aðildarskrá fer skriflega fram á það og sitja þeir embættismenn sem kosnir eru á aukaaðalfundi fram að næsta reglulega aðalfundi. Sömu reglur gilda um fundarboð aukaaðalfundar og koma fram í 5. gr. þessara laga.
  6. Stjórn Ungra evrópusinna og störf hennar
    1. Kosið er til stjórnar á aðalfundi. Frambjóðendur gefa kost á sér til almennrar setu í stjórn. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar skal stjórnin skipta með sér verkum.
    2. Stjórn hreyfingarinnar fer með æðsta vald á milli aðalfunda og sér um daglegan rekstur hreyfingarinnar.
    3. Hlutverk og ábyrgð einstakra stjórnarmanna er eftirfarandi:
      1. Formaður: Formaður Ungra evrópusinna er formaður framkvæmdastjórnar og málsvari hreyfingarinnar jafn út á við sem inn á við. Þá boðar formaður til funda og stjórnar þeim. Hann hefur umsjón með starfsemi félagsins.
      2. Varaformaður: Varaformaður er staðgengill formanns og gegnir störfum formanns í forföllum hans. Þá skal varaformaður starfa náið með formanni hreyfingarinnar.
      3. Gjaldkeri sér um allar fjárreiður Ungra evrópusinna og heldur bókhald hreyfingarinnar, varðveitir fylgiskjöl og annast alla nauðsynlega samningagerð því tengda.
      4. Ritari: Ritari heldur fundargerðir félagsins á fundum framkvæmdastjórnar og stjórnar. Ritari ber ábyrgð á útsendingu fundargerða. Ritari skal sjá um að varðveita samþykktir og fundargerðir félagsins og sjá til þess að þær séu aðgengilegar.
      5. Ritstjóri: Ritstjóri er umsjónarmaður vefsíðu Ungra evrópusinna og allrar annarrar útgáfu á vegum félagsins.
  7. Stjórnarfundir
    1. Stjórnarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Formaður boðar til þeirra og stýrir þeim að jafnaði. Sé ágreiningur um afgreiðslu mála skulu þau borin undir atkvæði og skoðast málið fellt sé ekki meirihluti fyrir því í stjórninni. Óski fjórðungur stjórnar eftir stjórnarfundi ber að halda hann innan viku frá því formanni berst slík ósk skriflega.
    2. Ritari heldur fundargerð á stjórnarfundi.
    3. Heimilt er að jafnaði að halda stjórnarfundi og taka ákvarðanir gegnum boðskiptatæki, nema einhver stjórnarmanna hreyfi andmælum og annað leiði af lögum þessum.
  8. Kjör til stjórnar Ungra evrópusinna
    1. Kosið er til stjórnar á aðalfundi. Fráfarandi stjórn skipar kjörstjórn, skipaða 2-4 einstaklingum, minnst þremur vikum fyrir aðalfund. Þeir sem sitja í kjörstjórn eru ekki kjörgengir til stjórnarsetu. Framboð til stjórnar skulu hafa borist kjörstjórn viku áður en aðalfundur er settur.
    2. Frambjóðendur bjóða sig fram til almennrar stjórnarsetu. Kosnir eru 6 einstaklingar í stjórn. Séu framboð til stjórnar fleiri en 6 skal ganga til einstaklingskosninga. Annars telst sjálfkjörið í embættin. Sá er réttkjörinn sem flest atkvæði hlýtur.
    3. Nú standa úrslit atkvæðagreiðslu á jöfnu og skal þá hlutkesti ráða.
    4. Stjórnarkjör skal vera skriflegt og leynilegt.
    5. Nú berast ekki framboð í öll stjórnarembætti áður en framboðsfrestur rennur út. Skal þá aðalfundur ákveða hvort auglýsa skal eftir framboðum á fundinum, eða hvort skipa skal uppstillingarnefnd sem gerir tillögu um framboð til stjórnar áður en aðalfundinum er slitið og tekur aðalfundurinn afstöðu til tillögunnar.
      Heimilt er aðalfundi að ákveða að stjórnarmenn skuli vera færri eða fleiri en getið er í 6. gr. þessara laga enda séu minnst tveir þriðju hlutar þeirra sem greiða atkvæði á fundinum sammála um það.
  9. Ýmis ákvæði
    1. Stjórn Ungra evrópusinna er heimilt að ákveða að stjórnarfundir skuli vera opnir almennum félagsmönnum. Hafa þeir málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt.
    2. Stjórn hreyfingarinnar getur boðað til almennra félagsfunda og er skylt að gera það innan viku frá því að þriðjungur félagsmanna fer skriflega fram á það.
    3. Stjórn Ungra evrópusinna getur sent frá sér ályktanir um mál, enda séu þær í anda samþykktrar stefnu félagsins.
    4. Stjórn Ungra evrópusinna skipar í þau embætti félagsins sem kunna að losna milli aðalfunda. Stjórn félagsins getur skipað undirnefndir til að annast stefnumótunarvinnu eða framkvæmd einstakra viðburða.
    5. Stjórn Ungra evrópusinna heldur utan um félagatal og gætir þess að það sé rétt og nothæft. Stjórn Ungra evrópusinna skal rita ársskýrslu og halda ársreikning og leggja fyrir aðalfund.
    6. Enginn getur skuldbundið hreyfinguna fjárhagslega nema formaður og gjaldkeri hreyfingarinnar. Skal formaður að jafnaði hafa samráð við gjaldkera áður en hann gerir fjárhagslegar skuldbindingar fyrir félagið.
    7. Lög hreyfingarinnar skulu aðgengileg félagsmönnum.
    8. Stjórn hreyfingarinnar má leiðrétta stafsetningarvillur, málvillur og augljósar misfellur í lögum þessum milli aðalfunda enda sé tryggt að efni laganna raskist í engu.
    9. Lögum þessum er aðeins hægt að breyta á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn minnst viku fyrir upphaf aðalfundar og skulu þær aðgengilegar félagsmönnum síðustu þrjá dagana fyrir aðalfund. Lagabreytingartillaga telst samþykkt fái hún tvo þriðju hluta greiddra atkvæða á aðalfundi.
    10. Slíta má félaginu með þremur fjórðum hluta atkvæða á tveimur aðalfundum hreyfingarinnar, að undangenginni tillögu þess efnis. Sé tillagan samþykkt á fyrri aðalfundi með þremur fjórðu hluta atkvæða skal formaður hreyfingarinnar boða aukaaðalfund mánuði síðar. Á síðari aðalfundinum skal ákveðið hvernig ráðstafa skuli eignum félagsins.
  10. Bráðabirgðaákvæði.
    1. Stjórn ársins 2009 – 2010 er falið að endurskoða þessi lög á fyrsta starfsári hreyfingarinnar og leggja fram nauðsynlegar breytingar. Stjórninni er heimilt að fela þessa endurskoðun starfshópi.