Sterkara Ísland hefur nú sett af stað fundar- eða fyrirlestraröð sem þeir kalla Fróðleikur á fimmtudegi.
Eins og nafnið bendir til eru þetta fundir sem verða á hverjum fimmtudegi og hefjast alltaf kl. 17 í Skipholti 50a þar sem Sterkara Ísland er með aðstöðu.
Á hverjum fundi er fyrirlesari eða málshefjandi.
Á meðfylgjandi slóð eru upplýsingar um fimm [...]
Forsíðuyfirlit
Formaður Ungra evrópusinna í Noregi: ræða.
Helgina 12.-14. mars fór formaður Ungra evrópusinna, Sema Erla, til Noregs til þess að vera viðstödd landsmót Ungra evrópusinna (Europeisk Ungdom) í Noregi. Þar flutti Sema meðal annars ræðu, en hún fylgir hér á eftir:
Kæru vinir og félagar,
ég verð að byrja á því að hrósa ykkur fyrir frábært landsmót, það er svo sannarlega ekki hægt [...]
Málfundur um ungt fólk og ESB.
Ungir evrópusinnar vilja vekja athygli á málfundi um ungt fólk og Evrópusambandið sem Ísafold, ungt fólk gegn ESB-aðild, í samstarfi við Orator, félag laganema við HÍ boða til fimmtudaginn 11. mars næstkomandi í sal 101 á Háskólatorgi kl. 11.40-12.20
Yfirskrift fundarins er ,,Ungt fólk og ESB – hvað græðum við á aðild?”. Ræðumenn verða þau Maria [...]
“Það er að koma stríð.”
Þann 5.mars síðastliðinn birtist góð grein á Deiglunni þar sem Pawel Bartoszek skrifar um landbúnaðarstefnuna og hugarfar Íslendinga.
“Það er ekki augljóst að það sé endilega farsælt til lengdar að grundvalla landbúnaðarstefnu á því að kjarnorkustyrjöld sé á leiðinni og að tryggja þurfi nægan mat handa öllum þegar til hennar komi. En jafnvel ef við lítum [...]
Ungir evrópusinnar fagna þáttaskilum í umsóknarferli Íslands – bjórkvöld!
Þann 24. febrúar síðastliðinn mælti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins með því við leiðtoga sambandsins að hafnar verði aðildaviðræður við Íslendinga um aðild að sambandinu.
Ungir evrópusinnar fagna þessum þáttaskilum í umsóknarferli Íslands og bjóða í því tilefni til fagnaðar.
Fögnuðurinn, sem verður í formi bjórkvölds, verður fimmtudaginn 4. mars næstkomandi á skemmtistaðnum Karamba á Laugavegi og hefst um klukkan [...]
Framkvæmdastjórn ESB mælir með viðræðum við Ísland.
Eins og fram kemur í fréttum í dag þá mælir framkvæmdastjórn ESB með því við leiðtoga sambandsins að hafnar verði viðræður við Íslendinga um aðild að sambandinu.
“Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mælir með því við leiðtoga sambandins að hafnar verði viðræður við Íslendinga um aðild að sambandinu. Íslendingar uppfylli öll helstu skilyrði aðildar en verði að breyta löggjöf [...]
Formenn ungliðahreyfinga með og á móti aðild að ESB tókust á á útvarpi Sögu.
Hér er hægt að hlusta á þáttinn ESB Nei eða Já? á Útvarpi Sögu sem fram fór í beinni útsendingu þann 13. febrúar sl. þar sem Sema Erla formaður Ungra evrópusinna og Brynja Björg formaður Ísfoldar ræða málin.
http://www.archive.org/details/EsbNeiEdaJa13Feb2010
ESB ætlar að endurskoða reglur um innustæðutryggingar
Eyjan greinir frá því í dag að ESB ætli að koma á sameginlegum innistæðutryggingasjóði fyrir allan innri markaðinn og það þannig verði komist hjá erfiðum deilum á borð við Icesave-málið í framtíðinni.
Diana Wallis: Icesave, Ísland og ESB
Fimmtudaginn 18. febrúar heldur Diana Wallis, varaforseti
Evrópuþingsins, erindi á vegum Alþjóðamálastofnunnar kl. 12 í sal 132 í
Öskju. Wallis fjallar um Icesave, Ísland og Evrópusambandið. Fundurinn
fer fram á ensku og allir eru velkomnir.
Diana Wallis hefur setið á Evrópuþinginu frá því árið 1999 og verið
varaforseti þingsins frá því í desember 2006. Wallis hefur lengi haft
mikinn áhuga á [...]
Pólitískir leikir í ESB umræðu
Stuttu fyrir jól birtist grein eftir Brynju Björgu Halldórsdóttur, stjórnarmann í Heimssýn, í Morgunblaðinu þar sem hún mælir gegn aðild að ESB. Ég svaraði greininni og benti þar á ýmsar rangfærslur í henni, aðallega með því að vitna í reglur Evrópusambandsins og niðurstöður rannsóknarskýrslna.
Í greininni „Upplýst þjóð segir nei við ESB“ sem birtist í Morgunblaðinu [...]