Forsíðuyfirlit

Til hamingju Ísland.

Ungir evrópusinnar óska öllum gleðilegs þjóðhátíðardags á sama tíma og þeir óska Íslendingum til hamingju með að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu hafi í dag verið samþykkt af Leiðtogaráði Evrópusambandsins.
“Með ákvörðun leiðtogaráðsins færist Ísland úr umsóknarferli yfir í viðræðuferli. ESB mun á næstu vikum vinna að samningsramma um skipulag fyrirhugaðra viðræðna sem öll aðildarríkin þurfa að [...]

Gaman saman:)

Ungir evrópusinnar vilja fá ÞIG út að leika á fimmtudaginn.
Við ætlum að hittast á Karamba klukkan 20.30 og fá okkur að drekka saman.
Mjöðurinn verður í boði Bændasamtakanna til að byrja með en er síðan niðurgreiddur af LÍU og selst því á evrópuverði fram á rauða nótt.

Bergur Ebbi segir nokkur vel valin orð um Evrópusamstarfið.
Aljört basic! [...]

Ályktun Ungra evrópusinna varðandi auglýsingu Ungra bænda.

Stjórn Ungra evrópusinna hafa sent frá sér ályktun er varðar auglýsingu frá Samtökum ungra bænda sem birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu síðasta föstudag.
“Ungir evrópusinnar harma tilraun Ungra bænda til að draga umræðu um Evrópumál niður í svaðið með fráleitum hræðsluáróðri um herskyldu á Íslandi.
Ungir evrópusinnar spyrja sig jafnframt hvers vegna Ungir bændur óttast svo mjög [...]

Evrópusambandið: til sjávar og sveita, borgar og bæjar

Formaður Ungra evrópusinna skrifar um byggðastefnu ESB.
Þegar ég settist niður og fór að íhuga hvaða hliðar Evrópusambandsins mig langaði að skrifa um fór ég strax að hugsa um það sem ég skrifa vanalega um en það eru hlutir eins og friður, lýðræði, frelsi, mannréttindi og menntamál innan Evrópusambandsins. Allt eru þetta mikilvægir málaflokkar innan Evrópusambandsins [...]

Fróðleikur á fimmtudögum hjá Sterkara Íslandi.

Fundaröðin Fróðleikur á fimmtudegi hjá Sterkara Íslandi hefur mælst mjög vel fyrir. Þegar eru að baki fimm erindi og búið að ákveða næstu þrjú. Ungir evrópusinnar hvetja áhugafólk um Evrópumál til þess að mæta á þessa áhugaverðu fundi hjá Sterkara Íslandi.
Sem fyrr eru fundirnir í Skipholti 50a og hefjast  kl. 17
20. maí
Viðskiptastefna ESB – áhrif [...]

Evrópa: Til hamingju með daginn!

Í dag, 9. maí, er Evrópudagurinn. Dagurinn sem markar upphafið að Evrópusamrunanum sem síðar varð að Evrópusambandinu. Tillögur þáverandi utanríkisráðherra Frakklands, Roberts Schumans, um náið samstarf ríkja Evrópu eru taldar marka upphafið að langvarandi samrunaþróun Evrópu og ár hvert er fæðingardegi Evrópu, 9. maí fagnað víða um Evrópu.
Í gegnum tíðina hefur pólitískt sundurleyti og hernaðarlega [...]

Markmið ESB styrkja samkeppnisstöðu Landsvirkjunar

Markmið Evrópusambandsins um losun gróðurhúsalofttegunda og nýir kolefnisskattar styrkja mjög samkeppnisstöðu Landsvirkjunar, en liður í framtíðarsýn fyrirtækisins er sókn inn á nýja markaði.
Á sögulegum ársfundi Landsvirkjunar í gær þar sem forstjórinn Hörður Arnarson, greindi í fyrsta sinn frá raforkuverði sem stóriðjufyrirtækin greiða, útlistaði Hörður framtíðarsýn og breyttar áherslur í rekstri Landsvirkjunar.
sjá nánar hér http://visir.is/article/20100417/VIDSKIPTI06/719982047

Gleðistund Ungra evrópusinna (HaPpY hOuR)! ;)

Ert þú að fara að byrja í prófum? Ert þú orðinn þreyttur á vinnuvikunni? Ert þú orðinn leiður á því að hanga heima á föstudögum? Eða langar þig bara í bjór?
Komdu þá og taktu þátt í gleðistund með Ungum evrópusinnum.
Við ætlum að taka Evrópu á þetta og hittast klukkan 17.00 á föstudaginn í svokallað Happy [...]