Ungir evrópusinnar

Ný stjórn Ungra Evrópusinna
Síðastliðið þriðjudagskvöld hittust ellefu ungir „landráðsmenn“ í reykfylltu bakherbergi í Skipholti. Lögðu þau þar fram ný drög að afnámi sjálfstæðis íslensku þjóðarinnar, því það er eindreginn vilji þessara föðurlandssvikara að Ísland skipi sér senn í flokk ósjálfstæðra og ófullvalda ríkja á borð við Danmörku, Svíþjóð, Þýskaland, Bretland og Frakkland, auk annarra aðildarríkja Evrópusambandsins.

Hópurinn hefur það reyndar einnig að markmiði að tryggja íslenskum þegnum aukið frelsi í ferðalögum, viðskiptum og verslun, sem og stuðla að lægra vöruverði, ódýrari skólagjöldum erlendis og bjartri framtíðarsýn í samvinnu við nágrannaríki Íslands í gegnum aðild Íslands að ESB.

Félagið heitir Ungir Evrópusinnar og er nýkjörinn formaður Dagbjört Hákonardóttir. Aðrir í stjórn eru:

Varaformaður: Freyja Steingrímsdóttir

Ritstjóri: Elís Rúnarsson

Gjaldkeri: Örvar Rafnsson

Ritari: Stefán Rafn Sigurbjörnsson

Meðstjórnandi: Auður Geirsdóttir

Meðstjórnandi: Bjarni Þór Pétursson

Meðstjórnandi: Brynhildur Bolladóttir

Meðstjórnandi: Guðrún Sóley Gestsdóttir

Meðstjórnandi: Hörður Unnsteinsson

Meðstjórnandi: Natan Kolbeinsson

Meðfylgjandi er mynd af nýkjörnum formanni félagsins.

Aðalfundur Ungra Evrópusinna.
Stjórn Ungra Evrópusinna boðar til aðalfundar þann 18. október næstkomandi. Aðalfundurinn verður haldinn í Skipholti 50a, í húsakynnum Já Ísland, klukkan 20.00.

Við hvetjum fólk til þess að bjóða sig fram í stjórn félagsins með því að senda póst á ungirevropusinnar@ungirevropusinnar.is fyrir klukkan 16.00, mánudaginn 17. október. Lagabreytingatillögur skulu einnig berast fyrir þann tíma.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Skýrsla fráfarandi stjórnar

2. Lagabreytingar

3. Kosning til stjórnar

4. Önnur mál/Fjör

Óvæntur gestur flytur stutt erindi. Léttar veitingar í boði.

Ný stjórn Ungra evrópusinna
Ný stjórn Ungra Evrópusinna var kjörin nú á dögunum og er nýr formaður stjórnar Stefán Rafn Sigurbjörnsson.

Stjórn Ungra Evrópusinna 2010 – 2011 skipa:

Formaður: Stefán Rafn Sigurbjörnsson

Varaformaður: Guðrún Sóley Gestsdóttir

Ritstjóri: Elís Rúnarsson

Gjaldkeri: Ísleifur Egill Hjaltason

Ritari: Sif Jóhannsdóttir

Meðstjórnandi: Heimir Hannesson

Meðstjórnandi: Sema Erla Serdar

Meðstjórnandi: Ólafur H. Ólafsson

„Ný stjórn Ungra Evrópusinna ætlar að leggja það fyrir sig í vetur að taka virkan þátt í málefnalegri umræðu um Ísland og Evrópusambandið. Tilgangur félagsins er að fræða ungt fólk um Evrópusambandið og starfsemi þess með áherslu á stöðu og möguleika Íslands í samstarfi Evrópuþjóða.

Ungir Evrópusinnar telja komandi vetur mikilvægan í umræðunni um Ísland og Evrópusamstarfið. Samninganefnd er nú að störfum við að undirbúa komandi samningaviðræður. Viðræður sem munu að lokum skila samningi sem borin verður undir þjóðina til samþykktar eða synjunar.

Ungir Evrópusinnar bera mikinn vilja og tilhlökkun til rökræðu og samstarfs við önnur félög sem taka þátt í umræðunni um Ísland og Evrópusambandið.”

Aðalfundur á morgun.
Kæru félagar,

næsta miðvikudag, þann 8. september verður aðalfundur Ungra evrópusinna haldinn. Fjörið verður haldið á efri hæðinni á Kaffi Sólon og hefst klukkan 20.00

Við hvetjum fólk til þess að bjóða sig fram í stjórn félagsins með því að senda póst á ungirevropusinnar@ungirevropusinnar.is fyrir klukkan 16.00 á miðvikudaginn.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Skýrsla fráfarandi stjórnar

2. Lagabreytingar

3. Kosning til stjórnar

4. Önnur mál

5. Fjör

Sjáumst hress.

Með kveðju frá fráfarandi stjórn Ungra evrópusinna.

Aðalfundur Ungra evrópusinna
Kæru félagar,

nú styttist í að félagið verði árs gamalt og því er kominn tími til þess að halda aðalfund og kjósa nýja stjórn.

Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 8. september klukkan 20.00.

Auglýst er eftir framboðum í stjórn og eru áhugasamir beðnir um að senda tikynningu um framboð á ungirevropusinnar@ungirevropusinnar.is fyrir klukkan 12.00 á hádegi á miðvikudag.

Nánari upplýsingar um fundarstað og dagskrá verður send út eftir helgi.

Kveðja,

Stjórn Ungra evrópusinnna

ESB fyrirvarar Ásmundar!
Þann 19. ágúst birtist grein í Fréttablaðinu eftir Ásmund Einar Daðason alþingismann VG og formann Heimssýnar, hreyfingar andstæðinga aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þarna endurskrifar hann grein Ögmundar Jónassonar sem birtist viku fyrr í Fréttablaðinu og spyr í lokin hvort fyrirvarar ESB haldi eða ekki þrátt fyrir að hafa fullyrt að svo sé ekki í fyrirsögn greinar. Þó spurningu hans sé beint til annars aðila fann ég mig knúna til að svara honum.

Þegar aðildarviðræður fara í gang á milli umsóknarríkis og ESB hafa báðir aðilar ákveðin samningsmarkmið sem að hálfu umsóknarríkis snúast vanalega um að njóta ákveðins sveigjanleika við aðlögun að lögum og stefnu sambandsins, sérstaklega á þeim sviðum þar sem miklir þjóðarhagsmunir eru í húfi. Þessi sveigjanleiki sem samið er um birtist meðal annars í aðlögunarfrestum, tímabundnum undanþágum og varanlegum sérlausnum, en heppilegra er að tala um sérlausnir en fyrirvara eins og Ásmundur Einar gerir.

Ótal mörg dæmi eru til um slíkt. Til dæmis fengu Pólverjar aðlögunarfrest á gildistöku réttar borgara og lögaðila frá öðrum ríkjum ESB til kaupa á fasteignum og jarðnæði í Póllandi til ársins 2016. Þá gerðu Búlgarar kröfu um tímabundna undanþágu frá reglum sambandsins um hámarkstjöruinnihald í sígarettum og frá álagningu fulls virðisaukaskatts á sígarettur og fengu. En hvað með varanlegu sérlausnirnar (fyrirvara) hans Ásmundar? Standa þær ekki?

Svarið er einfaldlega jú, varanlegar sérlausnir milli umsóknarríkja og ESB halda (í raun verða sérlausnirnar að reglum sem ný og fyrrum aðildarríki gangast undir) Í aðildarviðræðum sínum sömdu Lettar um varanleg sérákvæði um veiðar í Rigaflóa. Þannig óskuðu Lettar eftir sérreglum um veiðar á vissum hafsvæðum og í samræmi við þá ósk voru samdar sérreglur sem takmarka stærð og vélarafl skipa sem heimilt er að veiða og tryggja að samanlögð veiðigeta skipa sem fá að veiða verði ei meiri en sú sem þau höfðu sem veiddu þar fyrir inngöngu Lettlands í ESB.

Malta fékk yfir sjötíu aðlögunarfresti og undanþágur frá reglum Evrópusambandsins í samningaviðræðum sínum, til dæmis um frjálst flæði vinnuafls til landsins og um 25 sjómílna efnahagslögsögu fyrir innlenda sjómenn, og eru sumar þeirra varanlegar. Um þessa 25 mílna lögsögu segir í umsögn framkvæmdastjórnar ESB að stofna skuli til slíks svæðis innan ramma reglna sambandsins og að reglurnar um það skuli endurspegla raunverulegar verndarþarfir fiskistofna. Aðalatriðin snúa þó að því að fiskveiðar innan lögsögu Möltu skuli takmarkaðar við minniháttar strandveiðar, sem þýðir að veiðarnar séu aðeins stundaðar á bátum innan við 12 metra að lengd. Það myndi ekki svara kostnaði fyrir erlendar útgerðir að senda svo litla báta til veiða við Möltu og því þýðir þessi regla í raun að einungis bátar heimamanna megi veiða í lögsögunni. Að lokum má nefna styrkjakerfið í landbúnaðarstefnu ESB en almennt gildir að aðildarríki megi ekki styðja landbúnað í sínu landi með sértækum aðgerðum. Þar sem Finnar og Svíar höfðu mikilla hagsmuna að gæta í landbúnaði fengu þeir í aðildarviðræðum sínum skilgreindan sérstakan heimskautalandbúnað sem lýtur öðrum lögmálum en hin hefðbundna landbúnaðarstefna sambandsins. Þannig kom til sú regla að hægt sé að styrkja aukalega landbúnað norðan 62. breiddargráðu. Í dag eru það einungis Finnar og Svíar sem falla undir þessa skilgreiningu en Ísland og Noregur myndu að sama skapi njóta þessarar sérlausnar.

Sérreglur sem þessar eru dæmi um lausnir sem tryggja sérhagsmuni nýrra aðildarríkja án þess að þær lausnir kveði formlega á um undanþágu eða frávik frá reglum ESB. Í raun eru nýjar reglur samdar í kringum óskir aðildarríkjanna sem síðan gilda fyrir önnur ríki. Hvaða sérlausnir það síðan eru sem við munum semja um er annað mál, en eitt er víst að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því hvort þær haldi eður ei og því legg ég til að Ásmundur Einar og aðrir sameinist í því að semja sem best um okkar þjóðarhagsmuni í stað þess að eyða púðri í að afvegaleiða umræðuna um aðild.

Fréttablaðið 24. ágúst 2010.

Opið bréf til Ísafoldar, félags ungs fólks gegn ESB
Kæra Ísafold,

Eftir að við lásum bréf ykkar, sem stílað er á hæstvirtan forseta Alþingis og háttvirta Alþingismenn, þar sem þið hvetjið þingmenn til þess að samþykkja þingsályktunartillögu þess efnis að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka og gefið fyrir því tvær ástæður hvers vegna þið styðjið slíka tillögu, langar okkur að benda ykkur á nokkra hluti.

Þið segið í bréfinu að þær forsendur sem leiddu til aðildarumsóknar Íslands að ESB, að Evrópusambandsaðild og upptaka evrunnar myndu flýta fyrir efnahagsbata hins íslenska hagkerfis, séu brostnar. Það verður að teljast einstakt í sögunni að tólf frjáls og fullvalda ríki kasti af sjálfsdáðum eigin gjaldmiðli og taki í staðinn upp sameiginlega mynt, mynt sem í dag er orðinn einn útbreiddasti gjaldmiðill í heimi og hátt í þrjátíu ríki nota. Gengi evrunnar hefur sveiflast töluvert gagnvart Bandaríkjadal og á fyrstu árum féll til dæmis gengi hennar verulega en styrktist svo að nýju. Það stöðvaði hins vegar ekki ný ríki í því að taka upp Evruna sem og íslensk fyrirtæki, til dæmis útgerðarfyrirtæki, í að stunda sín viðskipti í Evrum. Það er því fullsnemmt að dæma evruna til dauða.

Þið nefnið landsfund Sjálfstæðisflokksins sem dæmi um óánægju íslensku þjóðarinnar með aðildarumsóknina að Evrópusambandinu og þá ályktun þeirra um að draga skuli umsóknina til baka án tafar. Til að byrja með er gott að benda á að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki þjóðin. Í öðru lagi fengu þessir sömu Sjálfstæðismenn Daniel nokkurn Hannan, Evrópuþingmann, til þess að flytja hér á landi erindi þar sem þeir áttu eflaust von á því að hann tæki undir ályktun þeirra. Það gerði hann hins vegar ekki heldur sagði hann að við ættum að drífa umsóknarferlið af og leyfa síðan þjóðinni að kjósa um samninginn. Sjálfstæðisflokkurinn er því eflaust ekki jafn hrifinn af erlendum fræðimönnum og Ísafold. Næst var það formaður Landsambands íslenskra útvegsmanna sem sagði að ekki ætti að draga umsóknina til baka heldur reyna að ná eins góðum samningi og mögulegt er. Það verður því að segja sem svo að þeim fer fækkandi sem vilja standa í vegi fyrir því beina lýðræði sem felst í því að leyfa þjóðinni að kjósa um aðildarsamninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Við viljum síðan benda Ísafold á að frá bæjardyrum Evrópusambandsins séð snúast aðildarviðræður í raun aðeins um það hvernig hið væntanlega nýja aðildarríki innleiðir alla gildandi sáttmála, löggjöf og stefnumið sambandsins. Að sama skapi mæta báðir aðilar til borðs með sín samningsmarkmið sem snúa fyrst og fremst að því fyrir okkur að fá að njóta ákveðins sveigjanleika við aðlögun að lögum og stefnum ESB, einkum á þeim sviðum þar sem mestir þjóðarhagsmunir teljast vera í húfi. Það er auðvitað ómögulegt að segja til um hvað kemur úr aðildarviðræðum fyrr en samningurinn liggur fyrir en ljóst er að flest umsóknarríki ganga í gegnum róttæk umskipti samhliða viðræðum en ólíklegt þykir að breytingarnar hér verði eins stórfenglegar eins og til dæmis þegar stækkunin til austurs stóð yfir.

Að lokum viljum við benda Ísafold á að Evrópusambandið hefur ekki sameiginleg auðlindayfirráð og þær reglur sem gilda um stjórn orkuauðlinda hafa þegar verið teknar inn í íslensk lög vegna EES-sáttmálans. Það kemur fram í 295. grein stofnsáttmála sambandsins að forræði yfir auðlindum sé hjá aðildarríkjum.

Í ljósi þessa hvetjum við ykkur til þess að leyfa Íslendingum að klára aðildarviðræður við Evrópusambandið og gefa þannig þjóðinni tækifæri til þess að kjósa um framtíð Íslands, í þjóðaratkvæðagreiðslu, um samninginn sem kemur út úr viðræðunum við Evrópusambandið.

Virðingarfyllst,

Stjórn Ungra evrópusinna.

Aðildarviðræður Íslands og ESB hafnar.
Aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins hófust formlega með ríkjaráðstefnu sambandsins þriðjudaginn 27. júlí.

Fréttablaðið greindi frá því að  ”íslensk stjórnvöld og forsvarsmenn ESB lögðu fram greinargerð um viðfangsefni samningaviðræðnanna auk þess sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, og Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belgíu, fluttu ræðu.

Össur sagði í ræðu sinni að umsókn Íslands væri rökrétt skref enda hefðu Íslendingar ávallt best tryggt sjálfstæði sitt og hagsmuni með virkri þátttöku í samstarfi vestrænna lýðræðis ríkja. Hann gerði grein fyrir helstu hagsmunamálum Íslands í komandi samningaviðræðum og lagði sérstaka áherslu á efnahagslegt mikilvægi sjávarútvegs fyrir Ísland. Finna þyrfti sérlausn sem tekur tillit til sérstakra aðstæðna Íslands og tryggir áframhaldandi öflugan og sjálfbæran sjávarútveg, sem og forræði Íslands yfir auðlindinni. Enn fremur sagði Össur að tryggja þyrfti bændum og fjölskyldum þeirra öruggt lífsviðurværi og nefndi aðild Íslands að evrusvæðinu sem mikilvægan þátt í endurreisn Íslands eftir efnahagshrunið.”

„Upphaf aðildarviðræðnanna í dag markar kaflaskil í samskiptum ESB og Íslands. Við vitum að viðræðurnar kunna að verða erfiðar á vissum sviðum, en ég er viss um að hægt er að mæta öllum áskorunum með viðeigandi stuðningi frá bæði ESB og Íslandi,” sagði Stefan Füle við þetta tilefni. Hann lýsti yfir áhyggjum af litlum stuðningi við aðild á Íslandi og bætti því við að ákvörðun Íslendinga ætti að byggjast á staðreyndum en ekki á goðsögnum og ótta. Það væri hins vegar hlutverk ríkis stjórnar Íslands að kynna ESB á hlutlausan hátt fyrir Íslendingum.”

Hér má lesa meira: http://visir.is/adildarvidraedur-islands-og-esb-hafnar/article/2010796574931

Nú verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.

Ár frá því að Alþingi samþykkti að sækja um aðild að ESB.
Í dag, þann 16. júlí, er eitt ár liðið frá því að Alþingi samþykkti að sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Til hamingju með daginn Evrópusinnar um allt land.

ESB: hernaðar- eða mannúðarsamband?
Andstæðingar Evrópusambandsins og aðildar Íslands að sambandinu hafa nú í nokkurn tíma sagt óhugnanlegar sögur af því sem þeir vilja meina að sé hernaðarbandalag sem mun neyða Íslendinga til þess að senda afkvæmi sín í hinn óhugnanlega Evrópusambandsher ef Ísland verður aðildarríki Evrópusambandsins. Nú fyrir stuttu fengu draugarnir á bak við sögurnar Samtök ungra bænda með sér í lið og fengu þá til þess að birta auglýsingu í fjölmiðlum landsins sem varaði landsmenn við því að með aðild að Evrópusambandinu fylgir herskylda fyrir okkur Íslendinga gagnvart hinum „væntanlega Evrópusambandsher“. Þar sem þessar sögur andstæðinga Evrópusambandsins eru álíka sannar og sú að Al-Kaída sérhæfi sig í blómaskreytingum ákvað ég að deila með lesendum nokkrum staðreyndum um utanríkis-, öryggis-, og varnarmál Evrópusambandsins.

Það var í Maastricht-sáttmálanum, sáttmálanum sem formlega myndaði Evrópusambandið í núverandi mynd, sem fyrst var kveðið á um sameiginlega utanríkis- og öryggisstefnu Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það eru utanríkismál enn að langmestu leyti á forræði aðildarríkjanna sem eru langt frá því að tala einni röddu í utanríkismálum en það kom greinilega í ljós í Íraksdeilunni þar sem aðildarríki Evrópusambandsins skiptust í hóp stuðningsmanna innrásinnar í Írak og andstæðinga hennar.

Það verður þó að segjast eins og er að uppi hafa verið raddir um sameinað herlið Evrópuríkja, allt frá því að Winston Churchill viðraði slíkar hugmyndir til Angelu Merkel, núverandi kanslara Þýskalands. Sú hugmynd hefur þó ekki orðið að veruleika og í raun þykir ansi  ólíklegt að svo verði einhvern tímann. Árið 1999 var þó samþykkt að koma á fót sameiginlegri evrópskri viðbragðssveit sem skipuð yrði um 60.000 hermönnum. Hér er alls ekki um sérstaka hersveit Evrópusambandsins að ræða heldur er sveitin skipuð hermönnum úr herjum aðildarríkjanna sem helst eiga að sinna friðargæsluverkefnum. Liðsafli og búnaður er byggður upp á loforðum aðildarríkja um framlög ef til átaka kemur og og hvert ríki tekur ákvörðun um hvort það veiti hernaðarlega aðstoð eða annars konar aðstoð og ekkert ríki er skuldbundið til þess að taka þátt í slíkum aðgerðum.

Fyrsta sjálfstæða verkefnið sem Evrópusambandið tók að sér var árið 2003 þegar tekið var yfir verkefni alþjóðalögreglusveita Sameinuðu þjóðanna í Bosníu og Hersegóvínu. Síðan þá hafa verkefnin verið margvísleg, en sem dæmi má nefna aðgerðir á svæðum Vestur-Balkanskaga, í Palestínu, Írak, Darfúr, Georgíu og Úkraínu. Evrópusambandið reynir með þessum aðgerðum að stuðla að útbreiðslu lýðræðis og verndun mannréttinda í heiminum.

Með útbreiðslu lýðræðis og verndun mannréttinda í huga er mikilvægt að nefna þá staðreynd að Evrópusambandið og ríki þess eru langstærstu veitendur þróunaraðstoðar í heiminum. Sameinuðu þjóðirnar hafa sett fram það markmið að vel stæð ríki heims leggi fram 0,7% af landsframleiðslu til þróunarmála en öll þau ríki sem hafa uppfyllt markmið Sameinuðu þjóðanna eru í Evrópu.

Þróunarverkefni Evrópusambandsins ná í dag til allra heimshorna og hinna ýmsu sviða og er þeim meðal annars ætlað að aðstoða þróunarríki við að taka þátt í alþjóðaviðskiptum upp á eigin spýtur. Samkvæmt samkomulagi um fríverslun með vörur aðrar en vopn fellir Evrópusambandið til að mynda einhliða niður tolla af helstu framleiðsluvörum frá fátækustu ríkjum heims samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna en strangar reglur um sjúkdómavarnir og öryggi standa enn í vegi fyrir viðskiptum að einhverju leyti. Þetta er þó allt gert til þess að aðstoða fátækustu ríki heimsins sérstaklega.

Vegna þessara atriða get ég ómögulega skilið hvers vegna andstæðingar Evrópusambandsins og aðildar Íslands að því eyða öllu sínu púðri í hræðsluáróður sem á sér engar stoðir í veruleikanum, hræðsluáróður um hernaðarbandalag sem við nánari athugun virðist stjórnast af mannúðarsjónarmiðum eins og þróunaraðstoð og lýðræðisumbótum í heiminum, í stað þess að fjalla um þau málefni Evrópusambandsins sem í raun skipta okkur máli og eru sönn. Ég get ekki annað en vonað að einhvern tímann fljótlega verði hægt að ræða staðreyndir málsins á mannamáli og að andstæðingar Evrópusambandsins hætti að segja lygasögur og slappi af í ímyndunarveikinni, en  ef ekki get ég að minnsta kosti talist heppin að fá ekki boð á viðburði hjá þeim þar sem mikið er um blómaskreytingar.

Grein birtist í Morgunblaðinu 14. júlí 2010.