Söfn eftir flokkum: Starfsemi félagsins

Aðalfundur á morgun.

Kæru félagar, næsta miðvikudag, þann 8. september verður aðalfundur Ungra evrópusinna haldinn. Fjörið verður haldið á efri hæðinni á Kaffi Sólon og hefst klukkan 20.00 Við hvetjum fólk til þess að bjóða sig fram í stjórn félagsins með því að senda póst á ungirevropusinnar@ungirevropusinnar.is fyrir klukkan 16.00 á miðvikudaginn. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Skýrsla fráfarandi stjórnar 2. Lagabreytingar 3. [...]

Aðalfundur Ungra evrópusinna

Kæru félagar, nú styttist í að félagið verði árs gamalt og því er kominn tími til þess að halda aðalfund og kjósa nýja stjórn. Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 8. september klukkan 20.00. Auglýst er eftir framboðum í stjórn og eru áhugasamir beðnir um að senda tikynningu um framboð á ungirevropusinnar@ungirevropusinnar.is fyrir klukkan 12.00 á hádegi á miðvikudag. Nánari upplýsingar um [...]

Ungir evrópusinnar fagna þáttaskilum í umsóknarferli Íslands – bjórkvöld!

Þann 24. febrúar síðastliðinn mælti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins með því við leiðtoga sambandsins að hafnar verði aðildaviðræður við Íslendinga um aðild að sambandinu. Ungir evrópusinnar fagna þessum þáttaskilum í umsóknarferli Íslands og bjóða í því tilefni til fagnaðar. Fögnuðurinn, sem verður í formi bjórkvölds, verður fimmtudaginn 4. mars næstkomandi á skemmtistaðnum Karamba á Laugavegi og hefst um klukkan [...]

Formenn ungliðahreyfinga með og á móti aðild að ESB tókust á á útvarpi Sögu.

Hér er hægt að hlusta á þáttinn ESB Nei eða Já? á Útvarpi Sögu sem fram fór í beinni útsendingu þann 13. febrúar sl. þar sem Sema Erla formaður Ungra evrópusinna og Brynja Björg formaður Ísfoldar ræða málin. http://www.archive.org/details/EsbNeiEdaJa13Feb2010

Formaður Ungra evrópusinna á Útvarpi Sögu á morgun.

Á morgun, laugardaginn 13. febrúar mun Sema Erla formaður Ungra evrópusinnar vera gestur þáttarins ESB – Nei eða Já? á útvarpi Sögu klukkan 12.45. Þar mun hún kynna samtökin, baráttumál og ræða um kosti og galla ESB. Einnig mun formaður nýstofnaðra samtaka ungs fólks gegn ESB aðild vera gestur þáttarins. Ekki missa af þessu.

Dagskrá Evrópuskóla

Hér er dagskrá Evrópuskóla Ungra evrópusinna eins og hún lítur út dag. Athugið að til stendur að gera hlé á dagskránni vegna leiks Íslands og Frakklands klukkan 13:00 á laugardaginn og því getur dagskráin riðlast til. (Þessi síða verður uppfærð til samræmis við það.) Athugið er að skrá sig í skólann með því að senda tölvupóst [...]