Söfn eftir flokkum: Áhugavert

Markmið ESB styrkja samkeppnisstöðu Landsvirkjunar

Markmið Evrópusambandsins um losun gróðurhúsalofttegunda og nýir kolefnisskattar styrkja mjög samkeppnisstöðu Landsvirkjunar, en liður í framtíðarsýn fyrirtækisins er sókn inn á nýja markaði. Á sögulegum ársfundi Landsvirkjunar í gær þar sem forstjórinn Hörður Arnarson, greindi í fyrsta sinn frá raforkuverði sem stóriðjufyrirtækin greiða, útlistaði Hörður framtíðarsýn og breyttar áherslur í rekstri Landsvirkjunar. sjá nánar hér http://visir.is/article/20100417/VIDSKIPTI06/719982047

Málfundur um ungt fólk og ESB.

Ungir evrópusinnar vilja vekja athygli á málfundi um ungt fólk og Evrópusambandið sem Ísafold, ungt fólk gegn ESB-aðild, í samstarfi við Orator, félag laganema við HÍ boða til fimmtudaginn 11. mars næstkomandi í sal 101 á Háskólatorgi kl. 11.40-12.20 Yfirskrift fundarins er ,,Ungt fólk og ESB – hvað græðum við á aðild?”. Ræðumenn verða þau Maria [...]

“Það er að koma stríð.”

Þann 5.mars síðastliðinn birtist góð grein á Deiglunni þar sem Pawel Bartoszek skrifar um landbúnaðarstefnuna og hugarfar Íslendinga. “Það er ekki augljóst að það sé endilega farsælt til lengdar að grundvalla landbúnaðarstefnu á því að kjarnorkustyrjöld sé á leiðinni og að tryggja þurfi nægan mat handa öllum þegar til hennar komi. En jafnvel ef við lítum [...]

Ungir evrópusinnar fagna þáttaskilum í umsóknarferli Íslands – bjórkvöld!

Þann 24. febrúar síðastliðinn mælti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins með því við leiðtoga sambandsins að hafnar verði aðildaviðræður við Íslendinga um aðild að sambandinu. Ungir evrópusinnar fagna þessum þáttaskilum í umsóknarferli Íslands og bjóða í því tilefni til fagnaðar. Fögnuðurinn, sem verður í formi bjórkvölds, verður fimmtudaginn 4. mars næstkomandi á skemmtistaðnum Karamba á Laugavegi og hefst um klukkan [...]

Formenn ungliðahreyfinga með og á móti aðild að ESB tókust á á útvarpi Sögu.

Hér er hægt að hlusta á þáttinn ESB Nei eða Já? á Útvarpi Sögu sem fram fór í beinni útsendingu þann 13. febrúar sl. þar sem Sema Erla formaður Ungra evrópusinna og Brynja Björg formaður Ísfoldar ræða málin. http://www.archive.org/details/EsbNeiEdaJa13Feb2010

ESB ætlar að endurskoða reglur um innustæðutryggingar

Eyjan greinir frá því í dag að ESB ætli að koma á sameginlegum innistæðutryggingasjóði fyrir allan innri markaðinn og það þannig verði komist hjá erfiðum deilum á borð við Icesave-málið í framtíðinni.

Diana Wallis: Icesave, Ísland og ESB

Fimmtudaginn 18. febrúar heldur Diana Wallis, varaforseti Evrópuþingsins, erindi á vegum Alþjóðamálastofnunnar kl. 12 í sal 132 í Öskju. Wallis fjallar um Icesave, Ísland og Evrópusambandið. Fundurinn fer fram á ensku og allir eru velkomnir. Diana Wallis hefur setið á Evrópuþinginu frá því árið 1999 og verið varaforseti þingsins frá því í desember 2006. Wallis hefur lengi haft mikinn áhuga á [...]

Athyglisverð grein.

Pawel Bartoszek kemur hér inná nokkrar athyglisverða punkta í grein sinni í Fréttablaðinu um daginn og segir hann m.a: „Valkostirnir í utanríkismálunum virðast helst vera tveir. Sá fyrri er að ganga í ríkjabandalag eins og Evrópusambandið. Sá síðari er að hengja sig á fá erlend ríki, þá helst Noreg og ef til vill Danmörku, og láta [...]

Formaður Ungra evrópusinna á Útvarpi Sögu á morgun.

Á morgun, laugardaginn 13. febrúar mun Sema Erla formaður Ungra evrópusinnar vera gestur þáttarins ESB – Nei eða Já? á útvarpi Sögu klukkan 12.45. Þar mun hún kynna samtökin, baráttumál og ræða um kosti og galla ESB. Einnig mun formaður nýstofnaðra samtaka ungs fólks gegn ESB aðild vera gestur þáttarins. Ekki missa af þessu.

Stofnun félags sjálfstæðra evrópumanna

Nokkrir evrópusinnar innan Sjálfstæðisflokksins hafa tekið sig saman um að mynda félagið Sjálfstæðir Evrópumenn. Stofnfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 12. febrúar kl. 16:30 í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Nánar um félagið hér: http://www.sterkaraisland.is/files/2010/02/sjalfstaedir-evropumenn-augl.pdf Ungir evrópusinnar fagna þessu framtaki Sjálfstæðismanna. Við hvetjum alla sem geta til að mæta á stofnfundinn og sýna þeim stuðning, óháð flokkshollustu. [...]