Söfn eftir höfundi:Sema Erla Serdar

Til hamingju Ísland.

Ungir evrópusinnar óska öllum gleðilegs þjóðhátíðardags á sama tíma og þeir óska Íslendingum til hamingju með að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu hafi í dag verið samþykkt af Leiðtogaráði Evrópusambandsins. “Með ákvörðun leiðtogaráðsins færist Ísland úr umsóknarferli yfir í viðræðuferli. ESB mun á næstu vikum vinna að samningsramma um skipulag fyrirhugaðra viðræðna sem öll aðildarríkin þurfa að [...]

Ályktun Ungra evrópusinna varðandi auglýsingu Ungra bænda.

Stjórn Ungra evrópusinna hafa sent frá sér ályktun er varðar auglýsingu frá Samtökum ungra bænda sem birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu síðasta föstudag. “Ungir evrópusinnar harma tilraun Ungra bænda til að draga umræðu um Evrópumál niður í svaðið með fráleitum hræðsluáróðri um herskyldu á Íslandi. Ungir evrópusinnar spyrja sig jafnframt hvers vegna Ungir bændur óttast svo mjög [...]

Evrópusambandið: til sjávar og sveita, borgar og bæjar

Formaður Ungra evrópusinna skrifar um byggðastefnu ESB. Þegar ég settist niður og fór að íhuga hvaða hliðar Evrópusambandsins mig langaði að skrifa um fór ég strax að hugsa um það sem ég skrifa vanalega um en það eru hlutir eins og friður, lýðræði, frelsi, mannréttindi og menntamál innan Evrópusambandsins. Allt eru þetta mikilvægir málaflokkar innan Evrópusambandsins [...]

Spennandi námsleiðir í Evrópufræðum.

Ungir evrópusinnar vilja vekja athygli á spennandi námsleiðum í Evrópufræðum við Háskólann á Bifröst. Umsóknarfrestur í námið er til 15. júní og hægt er að kynna sér námið betur á bifrost.is Hægt er að stækka myndina með því að smella á hana.

Fróðleikur á fimmtudögum hjá Sterkara Íslandi.

Fundaröðin Fróðleikur á fimmtudegi hjá Sterkara Íslandi hefur mælst mjög vel fyrir. Þegar eru að baki fimm erindi og búið að ákveða næstu þrjú. Ungir evrópusinnar hvetja áhugafólk um Evrópumál til þess að mæta á þessa áhugaverðu fundi hjá Sterkara Íslandi. Sem fyrr eru fundirnir í Skipholti 50a og hefjast  kl. 17 20. maí Viðskiptastefna ESB – áhrif [...]

Evrópa: Til hamingju með daginn!

Í dag, 9. maí, er Evrópudagurinn. Dagurinn sem markar upphafið að Evrópusamrunanum sem síðar varð að Evrópusambandinu. Tillögur þáverandi utanríkisráðherra Frakklands, Roberts Schumans, um náið samstarf ríkja Evrópu eru taldar marka upphafið að langvarandi samrunaþróun Evrópu og ár hvert er fæðingardegi Evrópu, 9. maí fagnað víða um Evrópu. Í gegnum tíðina hefur pólitískt sundurleyti og hernaðarlega [...]

Til hamingju með daginn Evrópa!

Í dag, 9.maí er Evrópudagurinn, dagurinn sem markar upphaf evrópusamvinnunnar og Evrópusambandsins. Deginum er fagnað víða um Evrópu. Til hamingju með daginn Evrópa! ;)

Gleðistund Ungra evrópusinna (HaPpY hOuR)! ;)

Ert þú að fara að byrja í prófum? Ert þú orðinn þreyttur á vinnuvikunni? Ert þú orðinn leiður á því að hanga heima á föstudögum? Eða langar þig bara í bjór? Komdu þá og taktu þátt í gleðistund með Ungum evrópusinnum. Við ætlum að taka Evrópu á þetta og hittast klukkan 17.00 á föstudaginn í svokallað Happy [...]

Fróðleikur á fimmtudögum.

Sterkara Ísland hefur nú sett af stað fundar- eða fyrirlestraröð sem þeir kalla Fróðleikur á fimmtudegi. Eins og nafnið bendir til  eru þetta fundir sem verða á hverjum fimmtudegi og hefjast alltaf kl. 17 í Skipholti 50a þar sem Sterkara Ísland er með aðstöðu. Á hverjum fundi er fyrirlesari eða málshefjandi. Á meðfylgjandi slóð eru upplýsingar um fimm [...]

Málfundur um ungt fólk og ESB.

Ungir evrópusinnar vilja vekja athygli á málfundi um ungt fólk og Evrópusambandið sem Ísafold, ungt fólk gegn ESB-aðild, í samstarfi við Orator, félag laganema við HÍ boða til fimmtudaginn 11. mars næstkomandi í sal 101 á Háskólatorgi kl. 11.40-12.20 Yfirskrift fundarins er ,,Ungt fólk og ESB – hvað græðum við á aðild?”. Ræðumenn verða þau Maria [...]