Söfn eftir höfundi:Helga Finnsdóttir

Gaman saman:)

Ungir evrópusinnar vilja fá ÞIG út að leika á fimmtudaginn. Við ætlum að hittast á Karamba klukkan 20.30 og fá okkur að drekka saman. Mjöðurinn verður í boði Bændasamtakanna til að byrja með en er síðan niðurgreiddur af LÍU og selst því á evrópuverði fram á rauða nótt. … Bergur Ebbi segir nokkur vel valin orð um Evrópusamstarfið. Aljört basic! [...]

Markmið ESB styrkja samkeppnisstöðu Landsvirkjunar

Markmið Evrópusambandsins um losun gróðurhúsalofttegunda og nýir kolefnisskattar styrkja mjög samkeppnisstöðu Landsvirkjunar, en liður í framtíðarsýn fyrirtækisins er sókn inn á nýja markaði. Á sögulegum ársfundi Landsvirkjunar í gær þar sem forstjórinn Hörður Arnarson, greindi í fyrsta sinn frá raforkuverði sem stóriðjufyrirtækin greiða, útlistaði Hörður framtíðarsýn og breyttar áherslur í rekstri Landsvirkjunar. sjá nánar hér http://visir.is/article/20100417/VIDSKIPTI06/719982047

Formaður Ungra evrópusinna í Noregi: ræða.

Helgina 12.-14. mars fór formaður Ungra evrópusinna, Sema Erla, til Noregs til þess að vera viðstödd landsmót Ungra evrópusinna (Europeisk Ungdom) í Noregi. Þar flutti Sema meðal annars ræðu, en hún fylgir hér á eftir: Kæru vinir og félagar, ég verð að byrja á því að hrósa ykkur fyrir frábært landsmót, það er svo sannarlega ekki hægt [...]

“Það er að koma stríð.”

Þann 5.mars síðastliðinn birtist góð grein á Deiglunni þar sem Pawel Bartoszek skrifar um landbúnaðarstefnuna og hugarfar Íslendinga. “Það er ekki augljóst að það sé endilega farsælt til lengdar að grundvalla landbúnaðarstefnu á því að kjarnorkustyrjöld sé á leiðinni og að tryggja þurfi nægan mat handa öllum þegar til hennar komi. En jafnvel ef við lítum [...]

Framkvæmdastjórn ESB mælir með viðræðum við Ísland.

Eins og fram kemur í fréttum í dag þá mælir framkvæmdastjórn ESB með því við leiðtoga sambandsins að hafnar verði viðræður við Íslendinga  um aðild að sambandinu. “Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mælir með því við leiðtoga sambandins að hafnar verði viðræður við Íslendinga um aðild að sambandinu. Íslendingar uppfylli öll helstu skilyrði aðildar en verði að breyta löggjöf [...]

Formenn ungliðahreyfinga með og á móti aðild að ESB tókust á á útvarpi Sögu.

Hér er hægt að hlusta á þáttinn ESB Nei eða Já? á Útvarpi Sögu sem fram fór í beinni útsendingu þann 13. febrúar sl. þar sem Sema Erla formaður Ungra evrópusinna og Brynja Björg formaður Ísfoldar ræða málin. http://www.archive.org/details/EsbNeiEdaJa13Feb2010

Diana Wallis: Icesave, Ísland og ESB

Fimmtudaginn 18. febrúar heldur Diana Wallis, varaforseti Evrópuþingsins, erindi á vegum Alþjóðamálastofnunnar kl. 12 í sal 132 í Öskju. Wallis fjallar um Icesave, Ísland og Evrópusambandið. Fundurinn fer fram á ensku og allir eru velkomnir. Diana Wallis hefur setið á Evrópuþinginu frá því árið 1999 og verið varaforseti þingsins frá því í desember 2006. Wallis hefur lengi haft mikinn áhuga á [...]

Athyglisverð grein.

Pawel Bartoszek kemur hér inná nokkrar athyglisverða punkta í grein sinni í Fréttablaðinu um daginn og segir hann m.a: „Valkostirnir í utanríkismálunum virðast helst vera tveir. Sá fyrri er að ganga í ríkjabandalag eins og Evrópusambandið. Sá síðari er að hengja sig á fá erlend ríki, þá helst Noreg og ef til vill Danmörku, og láta [...]

Formaður Ungra evrópusinna á Útvarpi Sögu á morgun.

Á morgun, laugardaginn 13. febrúar mun Sema Erla formaður Ungra evrópusinnar vera gestur þáttarins ESB – Nei eða Já? á útvarpi Sögu klukkan 12.45. Þar mun hún kynna samtökin, baráttumál og ræða um kosti og galla ESB. Einnig mun formaður nýstofnaðra samtaka ungs fólks gegn ESB aðild vera gestur þáttarins. Ekki missa af þessu.

Stofnun félags sjálfstæðra evrópumanna

Nokkrir evrópusinnar innan Sjálfstæðisflokksins hafa tekið sig saman um að mynda félagið Sjálfstæðir Evrópumenn. Stofnfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 12. febrúar kl. 16:30 í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Nánar um félagið hér: http://www.sterkaraisland.is/files/2010/02/sjalfstaedir-evropumenn-augl.pdf Ungir evrópusinnar fagna þessu framtaki Sjálfstæðismanna. Við hvetjum alla sem geta til að mæta á stofnfundinn og sýna þeim stuðning, óháð flokkshollustu. [...]