Aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins hófust formlega með ríkjaráðstefnu sambandsins þriðjudaginn 27. júlí.
Fréttablaðið greindi frá því að ”íslensk stjórnvöld og forsvarsmenn ESB lögðu fram greinargerð um viðfangsefni samningaviðræðnanna auk þess sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, og Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belgíu, fluttu ræðu.
Össur sagði í ræðu sinni að umsókn Íslands væri rökrétt skref enda hefðu Íslendingar ávallt best tryggt sjálfstæði sitt og hagsmuni með virkri þátttöku í samstarfi vestrænna lýðræðis ríkja. Hann gerði grein fyrir helstu hagsmunamálum Íslands í komandi samningaviðræðum og lagði sérstaka áherslu á efnahagslegt mikilvægi sjávarútvegs fyrir Ísland. Finna þyrfti sérlausn sem tekur tillit til sérstakra aðstæðna Íslands og tryggir áframhaldandi öflugan og sjálfbæran sjávarútveg, sem og forræði Íslands yfir auðlindinni. Enn fremur sagði Össur að tryggja þyrfti bændum og fjölskyldum þeirra öruggt lífsviðurværi og nefndi aðild Íslands að evrusvæðinu sem mikilvægan þátt í endurreisn Íslands eftir efnahagshrunið.”
„Upphaf aðildarviðræðnanna í dag markar kaflaskil í samskiptum ESB og Íslands. Við vitum að viðræðurnar kunna að verða erfiðar á vissum sviðum, en ég er viss um að hægt er að mæta öllum áskorunum með viðeigandi stuðningi frá bæði ESB og Íslandi,” sagði Stefan Füle við þetta tilefni. Hann lýsti yfir áhyggjum af litlum stuðningi við aðild á Íslandi og bætti því við að ákvörðun Íslendinga ætti að byggjast á staðreyndum en ekki á goðsögnum og ótta. Það væri hins vegar hlutverk ríkis stjórnar Íslands að kynna ESB á hlutlausan hátt fyrir Íslendingum.”
Hér má lesa meira: http://visir.is/adildarvidraedur-islands-og-esb-hafnar/article/2010796574931
Nú verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.