Ályktun Ungra evrópusinna varðandi auglýsingu Ungra bænda.

Stjórn Ungra evrópusinna hafa sent frá sér ályktun er varðar auglýsingu frá Samtökum ungra bænda sem birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu síðasta föstudag.

“Ungir evrópusinnar harma tilraun Ungra bænda til að draga umræðu um Evrópumál niður í svaðið með fráleitum hræðsluáróðri um herskyldu á Íslandi.

Ungir evrópusinnar spyrja sig jafnframt hvers vegna Ungir bændur óttast svo mjög málefnalega umræðu um kosti og galla Evrópusambandsaðildar byggða á staðreyndum en ekki lygum eins og um herskyldu allra Evrópuþjóða.

Ungir evrópusinnar hvetja Unga bændur um til þess að eyða orku sinni og peningum í fræðslu um Evrópusambandið í stað auglýsinga sem ekki eiga að gera neitt annað en að skapa ótta í kringum aðild Íslands að Evrópusambandinu “

Um höfundinn

Sema Erla SerdarSema Erla Serdar er stjórnmálafræðingur sem stofnaði Unga evrópusinna árið 2009.

Skrifa athugasemd

Við hvetjum þig til að skrifa athugasemdina undir réttu nafni og tölvupóstfangi. Ritstjórn áksilur sér rétt til að hafna birtingu og eyða athugasemdum.
Tölvupóstfangið þitt er aldrei gefið upp eða deilt með öðrum.

Þú mátt nota þessi HTML-tögg og eigindi: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>