Kæru félagar,
nú styttist í að félagið verði árs gamalt og því er kominn tími til þess að halda aðalfund og kjósa nýja stjórn.
Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 8. september klukkan 20.00.
Auglýst er eftir framboðum í stjórn og eru áhugasamir beðnir um að senda tikynningu um framboð á ungirevropusinnar@ungirevropusinnar.is fyrir klukkan 12.00 á hádegi á miðvikudag.
Nánari upplýsingar um [...]
Forsíðuyfirlit
ESB fyrirvarar Ásmundar!
Þann 19. ágúst birtist grein í Fréttablaðinu eftir Ásmund Einar Daðason alþingismann VG og formann Heimssýnar, hreyfingar andstæðinga aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þarna endurskrifar hann grein Ögmundar Jónassonar sem birtist viku fyrr í Fréttablaðinu og spyr í lokin hvort fyrirvarar ESB haldi eða ekki þrátt fyrir að hafa fullyrt að svo sé ekki í fyrirsögn [...]
Opið bréf til Ísafoldar, félags ungs fólks gegn ESB
Kæra Ísafold,
Eftir að við lásum bréf ykkar, sem stílað er á hæstvirtan forseta Alþingis og háttvirta Alþingismenn, þar sem þið hvetjið þingmenn til þess að samþykkja þingsályktunartillögu þess efnis að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka og gefið fyrir því tvær ástæður hvers vegna þið styðjið slíka tillögu, langar okkur að benda ykkur á [...]
Aðildarviðræður Íslands og ESB hafnar.
Aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins hófust formlega með ríkjaráðstefnu sambandsins þriðjudaginn 27. júlí.
Fréttablaðið greindi frá því að ”íslensk stjórnvöld og forsvarsmenn ESB lögðu fram greinargerð um viðfangsefni samningaviðræðnanna auk þess sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, og Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belgíu, fluttu ræðu.
Össur sagði í ræðu sinni að umsókn Íslands væri rökrétt skref enda [...]
Ár frá því að Alþingi samþykkti að sækja um aðild að ESB.
Í dag, þann 16. júlí, er eitt ár liðið frá því að Alþingi samþykkti að sækja um aðild að Evrópusambandinu.
Til hamingju með daginn Evrópusinnar um allt land.
ESB: hernaðar- eða mannúðarsamband?
Andstæðingar Evrópusambandsins og aðildar Íslands að sambandinu hafa nú í nokkurn tíma sagt óhugnanlegar sögur af því sem þeir vilja meina að sé hernaðarbandalag sem mun neyða Íslendinga til þess að senda afkvæmi sín í hinn óhugnanlega Evrópusambandsher ef Ísland verður aðildarríki Evrópusambandsins. Nú fyrir stuttu fengu draugarnir á bak við sögurnar Samtök ungra bænda [...]
Til hamingju Ísland.
Ungir evrópusinnar óska öllum gleðilegs þjóðhátíðardags á sama tíma og þeir óska Íslendingum til hamingju með að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu hafi í dag verið samþykkt af Leiðtogaráði Evrópusambandsins.
“Með ákvörðun leiðtogaráðsins færist Ísland úr umsóknarferli yfir í viðræðuferli. ESB mun á næstu vikum vinna að samningsramma um skipulag fyrirhugaðra viðræðna sem öll aðildarríkin þurfa að [...]
Gaman saman:)
Ungir evrópusinnar vilja fá ÞIG út að leika á fimmtudaginn.
Við ætlum að hittast á Karamba klukkan 20.30 og fá okkur að drekka saman.
Mjöðurinn verður í boði Bændasamtakanna til að byrja með en er síðan niðurgreiddur af LÍU og selst því á evrópuverði fram á rauða nótt.
…
Bergur Ebbi segir nokkur vel valin orð um Evrópusamstarfið.
Aljört basic! [...]
Ályktun Ungra evrópusinna varðandi auglýsingu Ungra bænda.
Stjórn Ungra evrópusinna hafa sent frá sér ályktun er varðar auglýsingu frá Samtökum ungra bænda sem birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu síðasta föstudag.
“Ungir evrópusinnar harma tilraun Ungra bænda til að draga umræðu um Evrópumál niður í svaðið með fráleitum hræðsluáróðri um herskyldu á Íslandi.
Ungir evrópusinnar spyrja sig jafnframt hvers vegna Ungir bændur óttast svo mjög [...]
Evrópusambandið: til sjávar og sveita, borgar og bæjar
Formaður Ungra evrópusinna skrifar um byggðastefnu ESB.
Þegar ég settist niður og fór að íhuga hvaða hliðar Evrópusambandsins mig langaði að skrifa um fór ég strax að hugsa um það sem ég skrifa vanalega um en það eru hlutir eins og friður, lýðræði, frelsi, mannréttindi og menntamál innan Evrópusambandsins. Allt eru þetta mikilvægir málaflokkar innan Evrópusambandsins [...]